Bláa marengstertan sem ég gerði fyrir 1 árs afmælið hans Ólafs Elí í sailor þemanu.
Mig hefur lengi langað að prófa gera bláa marengstertu svona af því ég var búin að prófa bleika fyrir eitt babyshower en var alltaf hrædd um að bláa yrði svona meira græn þið vitið….það vill oft verða þegar það er verið að reyna möndla með blátt í kökur en það eru til alveg vel bláir litir t.d. í Allt í köku og var ég með þannig lit sem er svona kremkenndur matarlitur. Gerði toppana fyrst en það má gera þá alveg nokkrum dögum áður þess vegna þeir geymast endlaust lengi og þeir tókust svo vel að ég ákvað að henda lit í kökuna líka. Til að gera svona toppa þar að nota Cream of tartar sem fæst einnig í Allt í köku en það er svona efni sem stífar marengesin alveg annars mundi þeir molgna meira niður.
Ég setti Rice Krispies saman við botnana, brómber og mars bita í rjómann á milli, toppaði síðan með súkkulaði, sýróps hjúp og skreytti með toppunum og brómberjum 😛
Hitið ofnin í 90°C og setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur og leggjið til hliðar.
Marengs toppar:
- 3 eggjahvítur (við stofuhita)
- 3/4 bolli (150 g) sykur
- Hnífsoddur af Cream of tartar (þykkingarefni, ég fékk það í Allt í Köku)
- 1 tsk vanilludropar
- Matarlitur, ég notaði blán og skipti marengsinum í 3 skálar
Gott er að fiturhreinsa hræirvélarskálina að innan með pappír með smá sítrónusafa. Eggjahvítur og Cream of tartar í skál þeytt á litlum hraða í 30 sekúndur, og auka hraða til miðlungs. Þeyta þar til eggjahvítur hafa mjúka tinda, um 1 mínútu. Auka hraða til miðlungs og bætið sykri við 1 skeið í einu. Þegar allur sykurinn er komin útí auka þá hraða uppí hæsta og þeyta þar til meringue er orðin stífur og gljáandi, í um 3 mínútur. Slökktu á hrærivélinni, bættu vanilludropum útí og hrærðu saman við. Skiptið meringue í þrjár sklálar og hrærðu þeim matarlitum sem þú vilt útí. Ég notaði bláan og setti mikinn lit í eina, minna í næstu fyrir ljósblátt og svo engan í eina þar sem ég vildi hafa hvíta líka. Ég mæli ég með að nota krem matarlit ekki vökvakenndan það gæti gert marengsin of þunnan. Ég fékk mína í Allt í Köku. Ég viljandi hrærði dökka blá ekki alveg út eins og þið sjáið þá kemur svona dekkra sum staðar í honum. Setti í 3 sprautupoka og dúllaði mér svo við að spauta þeim misstórum á plöturnar. Bakaði í 1 klst gæti farið í 1 og hálfa klst fer eftir stærð toppanna og ofn. Best að fylgst með þeim í lokin.
Marenges botnar
Hitið ofnin í 125° og klæðið tvö bökunarform að innan með álpappír.
Marengs
- 4 eggjahvítur
- 2 dl sykur
- 3 dl rice krispies (má sleppa)
- Blár matarlitur eftir smekk ég þurfti alveg frekar mikið til að ná þessum lit. (má sleppa)
Hrærið eggjahvíturnar þar til þær verða léttar of fluffý, bætið sykri útí og hrærið þar til blandan verður stíf. Bætið svo rice krispes útí og hrærið því varlega saman við með sleif. Skiptið deiginu í jafnt í bæði formin og smyrjið vel úr. Bakið í 80 mín. Látið botna kólna avleg áður en sett er á þá. En mér finnst best baka þá kvöldið áður og láta þá standa í ofninum eftir að slökkt hefur verið á honum yfir nóttina. Ég setti rjómann svo á um morguninn svo kakan mundi ná að riðja sig aðeins fyrir kvöldið, mareges er alltaf bestur þegar rjóminn er búin að lyggja aðeins á í minnsta kosti 8 tíma.
Þeyttur rjómi á milli
- 1/2 l þeyttur rjómi
- 1 askja brómber (skar þau í tvennt)
- 1 mars stykki skorið í litla bita (má sleppa)
Súkkulaði hjúpur yfir:
- 150 g Suðusúkkulaði
- 90 g ósaltað smjör
- 1 msk sýróp
- 1/2 tsk salt
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði ásamt smjöri, sýrópi og salti, hrærið þar til það verður slétt. Má líka hita í örbylgjuofni í um 50 sek. Látið kólna þar til það þykknar örlítið eða um 15 mín áður en þið hellið því yfir.
Raðaði svo toppunum og berjum ofan á.
By Heidi Ola ;p