Ég elska þykka smoothie drykki sem eru eins og þykkir sjeik eða ís og hægt er að leika sér að gera þá fallega fyrir augað í allskonar lögum 🙂
Grænn CHIA GO smoothie
- 1 lúka frosið avocado
- 1/2 grænt epli (afhítt)
- 1 kvíví (afhítt)
- Smá sítrónusafa (þarf ekki)
- sirka 4 klaka
- Setja svo bara smá vatn ef þið viljið hafa hann þykkann, bæta frekar í ef það er oft þykkt.
- 1 skvísa grænn Chia go (helt fyrst í glasið eða á toppinn ef þið viljið hafa það lagskipt, en mæli ekki með setja það með í mixarann því það skemmir chia fræin frekar hræra það útí eftir á)
Gulur CHIA GO smoothie
- 1 poki smoothie mix með ananas, mango, passion fruit, papaya fruit (þessir pokar fást td í Bónus)
- 1 lúka frosið mango
- 1/2 banani
- 1 passion fruit (þarf ekki en fæst ferskt í Hagkaup, gerir svona flotta áferð og er hrikalega gott)
- Smá sítrónusafa (þarf ekki)
- sirka 4 klaka
- 1 skvísa gulur Chia go (helt fyrst í glasið eða á toppinn ef þið viljið hafa það lagskipt, en mæli ekki með setja það með í mixarann því það skemmir chia fræin frekar hræra það útí eftir á)
Það er hægt að gera þennan líka bara með banana, magno og cha go.
By Heidi Ola 😉