Hráefni:
- 900 gr. Rose Poultry kjúklingabringur
- 1 msk Filippo berio cooking olía til steikingar
- 2 tsk Oskar hænsnakraftur
- Salt og pipar
- 1 Krukka Satay sósa frá Blue Dragon
- 150 ml Kókosmjólk í dós frá Blue Dragon (má nota alla fer eftir hvað þið viljið hafa sósuna þykka)
- 1 dl Sweet Chilliu sósa frá Blue Dragon
- 1 dl Gróft muldar kasjúhnetur
- 3 stk Lime
- ½ gúrka
- 1 poki rifin mozarella ostur
- Graslaukur eða púrrulaukur (má sleppa)
Meðlæti:
- 3 pokar Tilda Basmati hrísgrjón. (Gott að hræra saman við þau 1 tsk hænsnakraft og smjör útí þau þegar þau eru tilbúin).
- 1 pakki Patak´s Naan brauð.
Leiðbeininar:
- Hitið ofnin í 200 gráður.
- Skerið kjúklingabringurnar niður í smáa bita.
- Hitið pönnu með Filippo berio steikingar olíu. Á miðlungs hita lokið kjúklingingnum og kryddið með salt, pipar og hænsnakrafti.
- Setjið krukku af Satay sósu útá pönnuna ásamt, kókosmjólkinni og Sweet chilli sósu og hrærið vel saman.
- Hellið kjúklingnum ofan í eldfast mót, stráið osti yfir og setjið inní ofn í 20 mínútur.
- Á meðan sjóðið grjónin samkvæmt leiðbeiningum (12 mínútur)
- Skerið niður gúrku, graslauk og lime.
- Setjið naan brauðið á bökunarpappír á ofnplötu og stráið osti yfir, það fer svo með kjúklingnum inní ofn í 2-4 mín rétt í lokin.
- Þegar rétturinn er tibúin, stáið þá kasjúhnetum og graslauk yfir. (má sleppa).
- Berið fram með grjónum, grúrku og lime. Mæli með kreysta lime yfir réttinn þegar hann er komin á diskana.