Stundum fær maður skemmtilegar hugmyndir þegar maður ætlar bara að nota það sem til er í ískápnum…..Þessa dagana eigum við mikið af eggjum í ískápnum. Við fáum eggin frá okkar eigin hænum, öndum og gæsum sem ganga frjálsar í sveitinni okkar á Álftanesi.
Quesadilla með eggja og avocado salatinu mínu sem ég geri oft ofan á t.d. LKL brauð eða poppkex.
[do_widget „Featured Image“]Ofninn hitaður í 200°
Eggja og avocado salat:
2 harðsoðin egg (hér notaði hænu egg, en ég á alltaf til harðsoðin egg til að grípa í inní ískáp)
1 stórt avocado
4 msk kotasæla
1 tsk sítrónusafi (má sleppa)
Sítrónupipar (eða bara salt og pipar)
Öllu hrært saman og smurt á tortilla kökurnar, ég nota heilkorna tortilla kökur sem ég kaupi frá Santa Maria.
Steikti beikon og 2 egg (ég notaði andaregg hér, namm þau eru svo góð til viðbótar á pönnu. Raðaði ofan á og stráði svo smá rifnum ost yfir.
Önnur tortilla ofan á og meiri ost. Bakað í ofni þar til osturinn ofan á er orðin bráðin og kökurnar smá crispy í endunum. Engin sérstakur tími ég fylgist bara með, en þetta tekur alls ekki langan tíma. Skellti svo spælda egginu ofan á, því við fáum aldrei nóg af eggjum
Made by Heidi Ola