Vöfflaðu hafragrautinn þinn 🙂 Svo einfalt og gott !
Ég borðaði þessar vöfflur næstum alla morgna þegar ég var í niðurskurði fyrir mót, þá hafði ég þær bara plane en svo má leika sér að setja allskonar í þær eða ofan á þær t.d. um helgar í morgun brunch.
[do_widget „Featured Image“]
Aðferð:
Hitið vöfflujárnið og smyrjið það að innan með kókosolíu eða spreyið með pam spreyi. Það má líka hella þessu á pönnu og gera pönnukökur, jafnvel nota samloku grillið, bara það sem þið eigið.
Hafra vöfflur:
30-40gr hafrar (það er skirka magn fyrir kvennmann í morgunmat)
2 heil egg eða 200ml eggjahvítur
dass af kanil eftir smekk, má sleppa
1 msk rúsnínur eða frosin bláber, má sleppa
Allt sett saman í skál og hrært með písk eða gaffli. Líka hægt að setja í mixara og fá enn fínna deig. Svo bara hellt í járnið, þetta ætti að duga í 2 vöffur.
Ég geri þær oft kvöldið áður og tek með kaldar í nesti.
En þær eru bestar heitar og setja á þær t.d. klípu af kókosolíu og láta bráðna yfir, Walden Farms pancake sýróp, lífrænt hnetusmjör og sykurlausa sultu, eða jafnvel smjör og ost bara það sem ykkur dettur í hug 🙂
Made by Heidi Ola 😉