Osta fyllt kjúklingabringa með pepperoni og fyllt sæt kartafla

Ostafyllt kjúklingabringa

Ég byrja á að krydda bringurnar, á þessar notaði ég Cajun BBQ krydd frá Pottagöldrum. Skar svo smá rauf í bringurnar og tróð mexicoost ofan í. Setti þær í eldfast mót með smá vatni í botninum til að halda þeim safaríkum og mjúkum. Síðan sprautaði ég smá BBQ sósu yfir þær. Lokaði svo raufinni með léttu pepperoni frá SS sem ég var búin að gera krispí með því að steikja það á pönnu. Dassaði svo Heitu Pizzakryddi frá Pottagöldum yfir líka bara svona af því ég var komin í pepperoní gírinn 🙂

Bakað svo í ofni við 200 gráður í sirka 20 mín.

Fyllt sæt karfafla

Sæt kartafla
Fersk salsa, ég notaði gular baunir, tómata og gúrku. Gott að hafa lauk líka.
Rifin ost, ég notaði fjörmjólkurost. Og stundum smá af mexico ostinum líka. Ég sem sagt elska ost 🙂
Sker karföfluna í tvennt, baka í ofni í 30 mín. Tek hana svo út og sker í hana raufar (tígla) smurði yfir hana íslensku smjöri (getið notað olíu, eða í kötti spreya ég bara smá pam spreyi). Salta smá með maldon salti. Setti svo ferksa salsa yfir og var búin að skera smá af pepperoní líka í það. Setti svo rifin ost yfir og baka aftur í ofni í um 20-30 mín. Dassaði smá Heitu pizzakryddi yfir þetta líka.

Sósa með getur verið hvaða sósa sem er en ég notaði mína uppáhalds þessa dagana sem er góð með svo mörgu 😛

1/2 dós Sýður rjómi 5% á móti sirka jafn mikið af Grískri jógúrt
1msk Agave sýróp
1-2 Pressað hvítlauksrif
Svartur pipar eða sítrónupipar
Kreysta smá sítrónu útí

 

 

 

3 athugasemdir á “Osta fyllt kjúklingabringa með pepperoni og fyllt sæt kartafla

  1. María Erla says:

    þetta er snilld nomm nomm, verður gert næsta nammidag hihi…. elska sósuna 🙂 hvar færðu Cajun BBQ? ég hef ekki séð það 😉

    • heidiola says:

      Hehe já endilega prófa 🙂 Cajun BBQ kriddið fékk ég í Hagkaup frá Pottagöldurum, það það fæst örugglega í flest öllum búðum sem eru með kriddin frá þeim 🙂

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *